Skip to content
/ log Public

Lög félags tölvunarfræðinga í rekjanlegu formi

Notifications You must be signed in to change notification settings

FT84/log

Folders and files

NameName
Last commit message
Last commit date

Latest commit

 

History

8 Commits
 
 

Repository files navigation

Lög Félags tölvunarfræðinga

Síðast breytt á aðalfundi 23. maí 2024

1. gr.

Félagið heitir Félag tölvunarfræðinga og hefur heimili og varnarþing í Reykjavík

2. gr.

Markmið félagsins er:

  1. Að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna.
  2. Að vera í forsvari fyrir félagsmenn gagnvart innlendum og erlendum aðilum á sviðum tengdum störfum félagsmanna.
  3. Að efla þekkingu félagsmanna.
  4. Að efla tengsl og kynni félagsmanna.
3. gr.

Félagið vinnur að markmiði sínu m.a. með því:

  1. Að halda fundi um áhugamál félagsmanna.
  2. Að standa fyrir námskeiðum og erindaflutningi.
  3. Að hafa tengsl við samtök háskólamenntaðra manna hérlendis og erlendis.
  4. Að kynna tölvunarfræðina og tölvunarfræðinga fyrir utanaðkomandi aðilum.
4. gr.

Þeir sem ljúka B.S. prófi eða æðri gráðu í tölvunarfræðum eða tölvunarstærðfræði frá íslenskum háskóla geta orðið félagsmenn. Jafnframt geta aðrir sem lokið hafa sambærilegu prófi úr viðurkenndum háskóla erlendis, að mati stjórnar orðið félagsmenn. Mat þetta skal byggt á reglum sem samþykktar hafa verið af félagsmönnum á aðalfundi. Ennfremur geta nemendur á síðastu önn fyrir brautskráningu í tölvunarfræði frá íslenskum háskóla orðið félagsmenn.

Komi félagsmaður fram á þann hátt að ekki samræmist tilgangi félagsins, hag eða heiðri getur stjórn eða tíundi hluti félagsmanna lagt til að honum verði vikið úr félaginu. Endanlega ákvörðun um brottrekstur tekur félagsfundur og þarf 2/3 atkvæða á félagsfundi þar sem slíkt mál er til meðferðar samkvæmt fundarboði.

5. gr.

Félagsmaður skal hlíta siðareglum félagsins. Siðareglur félagsins eru hluti af lögum þess. Siðareglur Félags tölvunarfræðinga:

  1. Félagar skulu starfa heiðarlega.
  2. Félagar skulu starfa af faglegri ábyrgð.
  3. Félagi sem tekur að sér verk fyrir verkkaupa er óheimilt að taka við þóknun eða fríðindum frá þriðja aðila í sambandi við verkið, nema samþykki verkkaupa komi til.
  4. Félagar skulu ekki nota neinar trúnaðarupplýsingar frá vinnuveitanda eða skjólstæðingi, núverandi eða fyrrverandi án þess að fá leyfi til þess.
  5. Félagar ættu að auka faglega færni sína sem mest á hverjum tíma.
  6. Félagar eru hvattir til að auka orðstír félagsins.
  7. Félagar eru hvattir til að miðla faglegri reynslu á vettvangi félagsins.
6. gr.

Félagsfundur getur að tillögu stjórnar kosið heiðursfélaga, menn sem leyst hafa af hendi mikilsverð störf á sviði tölvunarfræði. Til að samþykkja tillöguna þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

7. gr.

Félagsmenn skulu greiða félagsgjald eins og það er ákveðið hverju sinni á aðalfundi. Hafi greiðsla ekki verið innt af hendi fyrir næsta aðalfund skoðast slíkt sem úrsögn úr félaginu enda líði a.m.k. 9 mánuðir milli aðalfunda.

Félagsmaður getur sagt sig úr félaginu með skriflegri beiðni til stjórnar.

Félagsmenn eldri en 65 ára og heiðursfélagar skv. 6. gr. skulu undanþegnir greiðslu félagsgjalds.

Félagsmenn sem búsettir eru erlendis vegna náms eða starfa skulu greiða hálft félagsgjald.

8. gr.

Félagsfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrir lok maímánaðar árlega. Aðalfund og félagsfundi skal boða skriflega með 14 daga fyrirvara hið minnsta. Skulu lög félagsins send félagsmönnum með aðalfundarboði. Félagsfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður fjöldi atkvæða úrslitum mála, nema annars sé getið í lögum þessum. Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagsmenn.

Stjórnin skal halda félagsfund ef tíundi hluti félagsmanna æskja þess skriflega. Skal hann haldinn innan eins mánaðar. Lagabreytingar skulu kynntar félagsmönnum með aðalfundarboði og einungis vera teknar fyrir á aðalfundi.

9. gr.

Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi í eftirfarandi röð:

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári.
  2. Reikningsskil.
  3. Lagabreytingar.
  4. Kosning stjórnar og varamanna.
  5. Kosning skoðunarmanna.
  6. Ákvörðun félagsgjalda.
  7. Önnur mál.
10. gr.

Um kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið skulu gilda eftirfarandi reglur:

  1. Kjósa skal leynilegri skriflegri kosningu.
  2. Embættisgengi hafa allir skuldlausir félagsmenn.
  3. Kjörtímabil er til næsta aðalfundar.
  4. Kosning skal vera bundin.
  5. Þegar kosið er um fleiri en eitt embætti í einu skal fjöldi nafna á kjörseðli ekki vera umfram fjölda embætta sem kosið er um. Þeir sem flest atkvæði fá teljast réttkjörnir.
11. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum. Kjósa skal formann sérstaklega, en aðra sameiginlega. Tvo varamenn skal kjósa sameiginlega. Stjórnin skiptir með sér verkum, en störfin eru: Gjaldkeri, ritari, formaður kjaranefndar og menntari. Ritari gegnir störfum formanns í fjarveru hans.

Formaður boðar til stjórnarfundar. Skylt er að halda stjórnarfundi ef stjórnarmaður gerir um það kröfu. Gerðir stjórnarinnar skulu bókaðar.

12. gr.

Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn. Skoðunarmenn skulu fara yfir reikninga félagsins og staðreyna hvort ársreikningur sé gerður í samræmi við góða bókhaldsvenju. Við þessa vinnu sína skulu skoðunarmenn kanna bókhaldsgögn félagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu. Þá skulu skoðunarmenn kanna hvort reikningar séu í samræmi við ákvarðanir félagsfunda og stjórnar. Skoðunarmenn skulu árita ársreikninga félagsins um að endurskoðun hafi farið fram.

13. gr.

Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkum sem lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

14. gr.

Innan félagsins skal starfa kjaranefnd sem hefur það hlutverk að safna upplýsingum um launa- og starfskjör félagsmanna. Nefndarmenn skulu vera tveir, skipaðir af stjórn félagsins. Formaður nefndarinnar skal vera einn stjórnarmanna.

15. gr.

Innan félagsins skal starfa siðanefnd sem hefur það hlutverk að kveða upp úrskurði um kærur sem berast vegna meintra brota á siðareglum félagsins. Siðanefnd hefur einnig heimild til að taka upp mál sem varða meint brot á siðareglum félagsins. Ritari félagsins er sjálfkrafa formaður nefndarinnar. Stjórn félagsins skipar 2 aðra aðila í nefndina.

Komi upp sú staða að nefndarmaður í siðanefnd tengist meintu siðabroti skal hann skilyrðislaust víkja og annar skipaður í hans stað.

16. gr.

Stjórn félagsins er heimilt að stofna til annarra nefnda en að ofan greinir og jafnframt að fela fastanefndum önnur verkefni en um getur í 14. gr.og 15. gr.

17. gr.

Reikningsár félagsins er frá 1. apríl til 31. mars.

18. gr.

Til þess að lagabreyting nái fram að ganga þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

19. gr.

Tillaga til slita á félaginu þarf samþykki 3/4 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi. Ákveði aðalfundur að slíta félaginu skulu allar eigur þess, ef einhverjar eru, renna til tölvunarfræðiskorar HÍ.

20. gr.

Samþykktar lagabreytingar öðlist þegar gildi.

About

Lög félags tölvunarfræðinga í rekjanlegu formi

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published