You signed in with another tab or window. Reload to refresh your session.You signed out in another tab or window. Reload to refresh your session.You switched accounts on another tab or window. Reload to refresh your session.Dismiss alert
Það sést ekki í leik hvort andstæðingurinn sver af sér hjálpartæki eður ei. Ég stundaði það því að fara út í leikjalistann til að gá, en með síðustu uppfærslu hætti það að sjást þar líka. Mér sýnist að það sjáist núna hvergi nema með því að fara í „Andstæðingar“ og hafa þar uppi á nafni andstæðingsins (og þar er engin leit, bara listar í stafrófsröð þar sem greint er á milli hástafa og lágstafa).
Þetta er til baga fyrir miðjumoðara eins og mig sem hafa þann háttinn á að banna sér hjálpartæki bara í leikjum á móti öðrum sem banna sér þau, en leyfa sér þau á móti öðrum sem leyfa sér þau. (Og raunar mætti alveg vera til sú yfirlýsing líka — eða þá að yfirlýsingin geti átt við um einstaka leiki.)
Best væri að gefa þetta til kynna bæði í leik og í leikjalista.
The text was updated successfully, but these errors were encountered:
Teikn um hjálpartæki sést á milli stiga leikmannanna:
Þetta teikn er á ef BÁÐIR leikmenn skrafla án hjálpartækja, annars af. Ef það vantar er báðum frjálst að nota hjálpartæki ef ekki er um annað samið out-of-band.
Gallinn er að merking yfirlýsingarinnar er tvíræð. Þín túlkun („Ef [ekki sverja báðir af sér hjálpartæki] er báðum frjálst að nota hjálpartæki“) er alls ekki sjálfsögð. Hin túlkunin („Ef [ekki segjast báðir nota hjálpartæki] er bannað að nota hjálpartæki“) er það sem ég vil meina, með því að merkja mig ekki með græna ferningnum.
Mig langar að gangast undir það heiðursmannasamkomulag að ég skrafla ekki með hjálpartækjum nema á móti öðrum sem skrafla með hjálpartækjum.
Ég bið því um að leikurinn geri það samkomulag jafnauðvelt og hitt, með því að (a) gera það auðvelt á ný að komast að því hvernig hinn notandinn hefur merkt sig, og helst líka (b) gera það kleift að lýsa þessu samkomulagi yfir með skýrum hætti (eða þá gefa kost á explísít stillingu í hverjum leik).
Þér er auðvitað frjálst að verða ekki við þeirri bón — en ertu til í að kalla hana a.m.k. ekki „invalid“? :)
"Mig langar að gangast undir það heiðursmannasamkomulag að ég skrafla ekki með hjálpartækjum nema á móti öðrum sem skrafla með hjálpartækjum." Þetta er einmitt merking merkingarinnar eins og ég skil hana. Ef þú ert að skrafla á móti leikmanni sem notar hjálpartæki er þér fullkomlega frjálst að nota hjálpartæki. Ef þú vilt hafa það prinsipp að nota aldrei hjálpartæki þá er það þér jafnframt fullkomlega frjálst en það þarf ekki sérstaka merkingu til þess, enda hefði hún engin áhrif á hegðun hugbúnaðarins (né andstæðingsins, ef út í það er farið).