Skip to content
Gunnar Þórunnarson edited this page Nov 28, 2023 · 4 revisions

Verksmiðja III - Internet hlutanna

Viðfangsefni áfangans er internet hlutanna (e.IoT) sem er samþætting tækja og hugbúnaðar tengda netinu, sem geta greint gögn og upplýsingar úr umhverfinu og miðlað þeim. Farið er í hlutverk og samskipti mismunandi tækja sem eru tengd saman á netinu. Unnið er með inntak frá tækjum og skynjurum, stýrikerfi, forritun, úttak og framsetningu gagna. Áfanginn er verkefnadrifinn og fást nemendur við hönnun og e. IoT frumgerðasmíð þar sem ýmis tæki og tól eru notuð.

nemendaverkefni.

Þekkingarmarkmið

Að nemandi öðlist þekkingu og skilning á

  • grunnuppbyggingu og virkni innfelldra kerfa (t.d. Raspberry Pi)
  • helstu vélbúnaðarhlutum, tækjum og skynjurum sem eru notaðir í e. IoT búnaði
  • stýrikerfi (t.d. Raspbian) í innfelldu kerfi
  • helstu samskiptaleiðum milli búnaðar i innfelldu kerfi
  • öryggismálum tengdum internet hlutanna
  • hönnunaferli frumgerðar

Leiknimarkmið:

Að nemandi geti

  • sett upp og unnið með innfellt kerfi (t.d. Raspberry Pi)
  • unnið með skipanir og stýrikerfi á innfelldu kerfi
  • skrifað kóða fyrir innfellt kerfi
  • notað samsettningu af inntaks- og úttaksbúnaði
  • unnið með inntaksupplýsingar til að stýra tengdum úttaksbúnaði
  • sýnt gögn frá skynjurum í vefviðmót eða smáforrit
  • sent gögn til ýmsa e. IoT endapunkt
  • notað ýmis tól og tæki til e. IoT frumgerðasmíði

Hæfnimarkmið:

Að nemandi nýti sér þá þekkingu og leikni sem hann öðlast til að:

  • tengja saman mismunandi tæki og búnað yfir netið
  • sækja og vinna með upplýsingar úr umhverfinu
  • smíða einfalda e. IoT frumgerð
Clone this wiki locally