-
Notifications
You must be signed in to change notification settings - Fork 2
0. Mitt auka tutorial
Það er fullt af aukahlutum sem er ekki hægt að finna í þessu sem ég hef fundið hér og þar um netið. Það er tildæmis ekkert um static skrár, hvernig á að setja upp nginx, og https. Ég ætla að útskýra hvernig ég gerði þetta allt.
Gunicorn er í raun það sem keyrir Django. Ef þú horfir á vídeóin þá sérðu að venjulega þegar kóði breytist þá breytist vefsíðan líka dynamically. Þegar gunicorn er notað þarftu að keyra þessa skipun í hvert skipti sem þú vilt breyta einhverju:
service gunicorn restart
Gunicorn er öruggara og betra en innbyggði vefþjónnninn í django. Gunicorn virkar sem milliliðurinn hjá Django og Nginx.
Nginx er vefþjónnin sem Django keyrir á. Undir
/etc/nginx/sites-available
er hægt að finna skrá sem heitir einungis django. Þessi skrá er aðlal-nginx stillingaskráin og hún er rosalega mikilvæg. Mína útgáfu er hægt að finna hér: django
Í efstu línunum er hægt að sjá tenginguna við gunicorn.
Inni í server blokkinni er hægt að sjá eina mikilvægustu línuna.
# your Django project's static files - amend as required
location /static {
alias /home/django/django_project/django_project/static;
}
Þetta er fyrir static skrár eins og til dæmis allt css, javascript og jafnvel myndir og myndbönd. Það gæti þó verið betra að nota /media fyrir eitthvað af þessu. Ég fer meira í þessar static skrár eftir smá.
Ég mæli með því að skoða nginx settings skránna þína (django) vel áður en þú heldur áfram. Það er mikilvægt að skilja hvað hún gerir.
ATH að seinasti hlutinn á skránni sem byrjar á ssl_certificate er aðeins nauðsynlegur ef þú ætlar að nota https
Til að tengjast við síðuna þína með sftp þarftu fyrst einhverskonar ftp client eins og FileZilla. Host er ip talan. Username er root (ekki nota django), password er það lykilorð sem þú valdir þegar þú skráðir þig inn fyrst. Port er 22.
Þú átt að vita ef þú horfðir á myndböndin (ég mæli mjög mikið með því) að það er ein skrá í django sem er ótrúlega mikilvæg: settings.py Ég mæli með því að skoða þessa skrá vandlega áður en þú byrjar að setja allt þetta upp.
Guðni Natan Gunnarsson, 2017